Dýnamó komst ekki til leiks

Dýnamó þurfti að gefa leikinn við BN´96 í gærkvöld.

Dýnamó tilkynnti það til UÍA snemma í dærdag að þær gætu ekki mannað lið til að mæta BN á Neskaupsstað í gær.  Leikurinn var því dæmdur 3-0 sigur fyrir BN.  BN hlaut því 23 stig og enduðu langfefstir í B-riðli.  Eins og áður hefur komið fram þá mætir BN liði UMFB á Neskaupsstað á miðvikudaginn í undanúrslitaleik.  Lokaleikir B-riðils verða svo spilaðir í kvöld þegar KE mætir liði 06.apríls og HRV mætir liði Súlunar.  Það verða svo annað hvort KE eða HRV sem mæta liði Hattar á Vilhjálmsvelli á miðvikudag klukkan 19:00 í hinum undanúrlitaleiknum.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ