Spretts Sporlangamótið í frjálsíþróttum

Frjálsíþróttaráð UÍA stendur fyrir Spretts Sporlangamótinu í frjálsíþróttum fyrir keppendur tíu ára og yngri á Vilhjálmsvelli á miðvikudaginn klukkan 17:00. Keppt verður í boltakasti, langstökki, 60 metra spretthlaupi og 400 metra hlaupi.

Þátttökugjald er 500 krónur á keppenda, óháð greinafjölda. Skráningar og nánari upplýsingar eru hjá skrifstofu UÍA í síma 471-1353 eða á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

Mótið er styrkt af Landsbankanum. Hinn síspriklandi Sprettur mætir á svæðið og bregður á leik.

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ