Vetrarbruni úr leik

Liði Vetrarbruna hefur verið vísað úr keppni í Malarvinnslubikarnum. Búið var að gefa liðinu möguleika á að bæta sitt ráð fyrir að mæta ekki í útileik án þess að láta vita en vilji virtist ekki vera til staðar hjá forsvarsmönnum liðsins til þess. Úrslit í leikjum Vetrarbruna verða því strikuð út og verður ný staða og leikjaplan birt á morgun.

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ