Sumarhátíð 2008 lokið

Á sunnudag lauk Sumarhátíð UÍA með afhendingu bikara fyrir frjálsar íþróttir. Alls tóku á bilinu 300-350 keppendur þátt í hátíðinni.

 

Mikil ánægja er hjá UÍA með þátttökuna og gekk framkvæmd hátíðarinnar vel. UÍA vill sérstaklega þakka öllum þeim sjálfboðaliðum sem unnu við framkvæmd mótanna, en án þeirra er ekki hægt að halda hátíð af þessu tagi. Eins eiga foreldrar og aðrir gestir hátíðarinnar þakkir skyldar fyrir að mæta, jafnvel langt að, til að hvetja keppendur.

Úrslit úr einstökum mótum verða birt hér á vefnum á næstu dögum eftir því sem búið er að vinna úr þeim.

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok