Malarvinnslubikarinn: Fimmta umferð

Heil umferð var leikin í Malarvinnslubikarnum á sunnudag. Keppnin er æsispennandi.

Á Fellavelli tóku Þristarmenn á móti langt að komnum liðsmönnum Dýnamó. Gestrisnin var ekki í hávegum höfð og höfðu heimamenn sigur 3-1.

UMFB lék sinn fyrsta heimaleik á tímabilinu, enda nú búið að heyja heimavöll þeirra. Höfðu þeir baráttusigur gegn 06. apríl 3-2.

Í Fjarðabyggðarhöllinni léku heimamenn í KR gegn grönnum sínum í BN ´96. Norðfirðingarnir gerðu góða ferð þangað og unnu stórsigur 2-5.

Malarvinnslubikarinn er æsispennandi í ár. Stöðuna í deildinni má sjá með því að smella á hlekkinn Malarvinnslubikarinn 2008 hér vinstra megin á síðunni.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok