Þrír leikir hafa verið spilaðir í þriðju umferð Malarvinnslubikarsins.

Leikur Þristarins og Hattar B fór 1-15 samkvæmt leikskýrslu og endurtalningu dómarans.

06.apríl tóku á móti Knattspyrnufélagi Fjarðaáls og sigruðu örugglega 10 - 0.

KR/ Leiknir B tóku á móti UMFB og sigruðu 4-0.

Enn eru eftir leikir Vetrarbruna og BN 96 annars vegar og Dýnamó Hafnar og Einherja hins vegar.

Lið frá Alcoa hefur bæst við í Malarvinnslubikarinn og hefur keppni gegn Þristinum kl 20:00 í Fjarðarbyggðarhöllinni á mánudaginn og mun spila við liðin sem áttu að sitja hjá í hverri umferð. Ný leikjadagskrá kemur von bráðar á netið þegar nýja liðið hefur valið sér nafn.

Alls kepptu 3 lið auk 11 einstaklinga fyrir hönd UÍA á Landsmóti UMFÍ sem fram fór í Kópavogi um síðustu helgi.
Í handknattleik karla sigraði lið UÍA fyrsta leik sinn á móti HSÞ 28-23. Þeir töpuðu síðan næstu tveimur og lentu í 3.sæti mótsins. Fyrir þann árangur hlutu þeir 80 stig fyrir UÍA. Í körfuknattleik spilaði lið UÍA 3 leiki sem þeir töpuðu en naumlega þó fyrir HSK 36-34. Þeir sögðu sig síðan úr keppni vegna manneklu. Briddssveitin náði sé ekki á strik á mótinu og hafnaði í 12.sæti.
Í frjálsum íþróttum hafnaði Lovísa Hreinsdóttir í 4.sæti í kringlukasti kvenna og Einar Hróbjartur Jónsson í 6.sæti í spjótkasti karla. Samtals fengu þau 12 stig fyrir UÍA.
Í glímu sigraði Snær Seljan Þóroddsson alla andstæðinga sína og bar sigur úr bítum í -80 kg flokk karla. Magnús Karl Ásmundsson lenti í 4 sæti í -90 kg flokki karla og Sindri Freyr Jónsson lenti í 4. sæti í 90 kg flokki karla. Samtals fengu þeir 24 stig fyrir UÍA.
Í skotíþróttum, nánar tiltekið 60 skotum liggjandi, kepptu þeir Viðar Finnsson og Sigvaldi H. Jónsson. Viðar lenti í 3. sæti og Sigvaldi í því 4. Samtals fengu félagarnir 15 stig fyrir UÍA.
Í starfsgreinum kepptu feðgarnir Ólafur Sigfús Björnsson og Björn Ármann Ólafsson í gróðursetningu. Ólafur sigraði keppnina og faðir hans lenti í 3.sæti. Fyrir þennan frækna árangur fengu þeir feðgar 18 stig fyrir UÍA. Anna Sigríður Karlsdóttir lenti í 16.sæti í stafsetningu og Guðmundur Hallgrímsson í 18.sæti í starfshlaupi.
Alls hlaut UÍA 149 stig og var í 15. sæti af 25 félögum. Er það mjög góður árangur ef miðað er við keppendafjölda UÍA.
Hlaupamót verður á Vilhjálmsvelli þriðjudaginn 3.júlí.
Frjálsíþróttadeild Hattar stendur fyrir mótinu og verður keppt í flokkum 14 ára og yngri og 15 ára og eldri. Mótið hefst klukkan 18:00 og verður tekið við skráningum á staðnum. Nánari upplýsingar í símum 844-7978 og 868-5742. UÍA skorar á alla bæði unga sem aldna að taka þátt en útbúnaður við mótið er eins og hann gerist bestur. Einnig skorar UÍA á fólk að gera sér glaðan dag og mæta á völlin til að fylgjast með mótinu.

Þristur og Höttur B mættust í 3. umferð Malarvinnslubikarsins á Eiðum í gær og unnu Hattarmenn "nauman" sigur 1-15. Hér að neðan er einnig tengiliðalisti og er alltaf hægt að fletta gegnum gamlar fréttir Malarvinnslubikarsins og skoða þennan lista.

Þrír leikir fóru fram í gærkvöldi í annarri umferð Malarvinnslubikarsins.

Einherji fékk 06. apríl í heimsókn og endaði leikurinn með 2-2 jafntefli.

KR/Leiknir B fór á Djúpavog og sigraði lið Vetrarbruna með 3 mörkum gegn engu.

Höttur B sigraði lið BN 96 með 6 mörkum gegn 1.

Tveir síðustu leikir umferðarinnar verða spilaðir í kvöld og á miðvikudagskvöldið.