Sambandsþing UÍA 2022 - Haraldur íþróttamaður UÍA árið 2021

Sambandsþing UÍA 2022 fór fram sunnudaginn 24. apríl á Seyðisfirði. Vel var tekið á móti gestum á Seyðisfirði og vill UÍA koma þökkum til allra þeirra sem komu að þinginu í ár. 

Benedikt Jónsson var endurkjörinn sem formaður UÍA og allir úr fyrrverandi stjórn halda áfram sínum störfum. 

Haraldur Gústafsson var valinn íþróttamaður UÍA árið 2021. Haraldur vann báða Íslandsmeistaratitlana í bogfimi (innandyra og utandyra) í Ólympískum sveigboga árið 2021. Hann vann einnig báða Íslandsmeistarartitlana í 50+ (öldunga). Haraldur vann öll önnur mót í sveigboga sem hann keppti í innanlands á árinu 2021.

Í innandyra heimsbikarmótaröð heimssambandsins (World Archery Indoor World Series - IWS 2021-2022) var Haraldur um tíma efstur á heimslista mótaraðarinnar og við lok ársins 2021 var hann meðal efstu 10 í mótaröðinni. Þegar öllum mótum sem tengd voru við heimsbikarmótaröðina var lokið í febrúar 2022 endaði Haraldur í 22 sæti í mótaröðinni og fleiri en 600 manns sem tóku þátt í mótaröðinni.

Auður Vala Gunnarsdóttir hlaut Hermannsbikarinn, hvatningarverðlaun UÍA fyrir sitt starf fyrir fimleikadeild Hattar.

Auður Vala var ein af fyrstu iðkendum fimleikadeildar Hattar þegar deildin byrjaði 1984 en deildin var stofnuð formlega 1986. Árið 1989 var Auður beðin að þjálfa hjá fimleikadeild Hattar ásamt nokkrum konum hér í bæ og þjálfaði til ársins 1991. Árið 2000 flytur Auður heim í Egilsstaðir og tók að sér starf yfirþjálfara fimleikadeildar Hattar. Nánast síðan þá hefur Auður starfað sem yfirþjálfari og séð um að staðið séð faglega að öllu starfi innan deildarinnar og náð glæsilegum árangri. Hún hefur verið sannur leiðtogi á þessu sviði hjá deildinni, Auður tók sér frí frá yfirþjálfun haustið 2018 en tók aftur við sem yfirþjálfari haustið 2020. Telja má líklegt að fáir eigi sé jafn langan feril sem yfirþjálfari innan fimleika á Íslandi. 

Auður Vala hefur hlotið þó nokkuð af viðurkenningum fyrir sitt starf, meðal annars fékk hún starfsmerki UÍA árið 2012, starfsmerki Fimleikasambands Íslands árið 2008, starfsmerki Hattar árið 2018 ásamt því að fá gullmerki Fimleikasambands Íslands árið 2019. Auður hlaut svo hinn eftirsóknaverða Þorrann (veitur á þorrablóti á Egilsstöðum) árið 2010 fyrir sitt framlag til fimleikaiðkunar á Fljótsdalshéraði

Þorvaldur Jóhannsson fékk gullmerki UMFÍ á þinginu.

Ólafía Þórunn Stefánsdóttir, Ólöf Hulda Sveinsdóttir og Bryndís Aradóttir fengu allar starfsmerki UÍA og vill UÍA óska öllu þessu frábæra fólki til hamingju með verðlaunin.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok