Kynningarferð samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs

Á næstu vikum verða kynningarfundir haldnir víðsvegar um land þar sem farið verður yfir starf samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs.

Markmið með starfi samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs er að slíkt starf fari fram í öruggu umhverfi og að börn, unglingar og fullorðnir, óháð kynferði eða stöðu að öðru leyti, geti stundað íþróttir eða æskulýðsstarf og leitað sér aðstoðar eða leitað réttar síns vegna atvika og misgerða sem eiga sér stað án þess að þurfa að óttast afleiðingarnar. Með atvikum og misgerðum er átt við andlegt, líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi og áreitni, einelti og önnur sambærileg tilvik.

Kynningin verður í Menntaskólanum á Egilsstöðum, fimmtudaginn 21. október kl. 17:00.

Dagskrá kynningarinnar verður:

  • Kynning á starfi samskiptaráðgjafa.
  • Kynning á öflun upplýsinga úr sakaskrá.
  • Kynning á vinnu við samræmingu viðbragðsáætlana vegna atvika og misgerða.

Óskað er eftir því að á kynninguna mæti forsvarsaðili eða stjórnarmeðlimur félaga eða starfseininga ásamt einhverjum starfsmönnum, leiðbeinendum eða þjálfurum sem vinna oftar í beinum tengslum við þátttakendur og iðkendur. Í kjölfar kynningarinnar verður útbúið efni sem félög geta nýtt sér til að koma skilaboðunum áfram innan sinna raða.

Hvert félag eða starfseining getur mætt á þær kynningar sem staðsettar eru þeim næst en eru að sjálfsögðu velkomin á aðrar kynningar ef sá tími og/eða staður hentar þeim betur.

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok