Bjóðurm Brettafélagið í Fjarðabyggð velkomið í UÍA

Nýtt aðildarfélag bættist nú á dögunum undir hatt UÍA og bjóðum við Brettafélag Fjarðabyggðar velkomið í hópinn.

Hér er smá kynning á félaginu og starfi þess sem Birgir Tómasson formaður Brettafélagsins sendi okkur:

 

Í desember 2012 var stofnuð Snjóbrettadeild innan Skíðafélags Fjarðabyggðar (SFF). Undir merkjum SFF

starfað deildin í 2 ár eða þar til í desember 2014, þegar meirihluti stjórnar SFF ályktaði um að leggja niður

snjóbrettadeildina innan SFF og lagði til að stofnað yrði nýtt félag. Félagið fékk nafnið Brettafélag

Fjarðabyggðar.

 

Frá upphafi, fyrst innan SFF og svo sem Brettafélag Fjarðabyggðar (BFF) hefur æfingum verið haldið úti fyrir

börn og ungmenni frá aldrinum 6 til 19 ára. Hefur félagið verið með tvo þjálfara að jafnaði, að störfum yfir

æfinga tímabilið. Megin markmið Brettafélagsins er að gefa jafnt börnum sem fullorðnum tækifæri á að

kynnast þessari skemmtilegu íþrótt.

Hafa krakkarnir innan félagsins farið á tvö til þrjú snjóbrettamót á vetri og hafa á þeim sýnt mjög góðan

árangur, bæði í stelpna og stráka flokkum, hafa krakkarnir unnið bæði til titla bæði á bikarmótum og

Andrésar Andar leikunum. Við höfum því miður ekki enn getað haldið okkar eigin mót vegna aðstöðuleysis,

en innan skamms verður bætt úr því.

Í janúar 2015 fór félagið með 13 iðkendur ásamt þjálfara og nokkrum foreldrum til skíðasvæðisins

Obertauern í Austuríki, til æfinga við snjóbrettaskóla Blue-tomato. Þessi skóli er virtur í brettaheiminum og

er einn af fáum skólum sem kenna eingöngu á snjóbretti. Allir skemmtu sér konunglega og fengu

krakkarnir mjög góða þjálfun. Greinilegar framfarir voru hjá öllum hópnum sem sótti skólann.

Ásamt því að halda úti æfingum þá hefur BFF einbeitt sér að því að bæta aðstöðu fyrir brettaiðkendur á

skíðasvæðinu í Oddsskarði. Tímamót urðu þegar félagið fékk í byrjun árs, styrk uppá tvær og hálfa milljón

frá Fjarðabyggð, sem greiddar verða út á næstu fimm árum, til kaupa á boxum og öðrum hlutum sem

nauðsynlegir er til að geta útbúið góða æfinga og keppnisbraut. Þar sem styrkurinn hljóðaði uppá fimm ára

fjármögnun var leitað til Samvinnufélags Útgerðarmanna í Neskaupsstað (SÚN) um fjármögnun

verkefnisins. Tókust samningar við SÚN, án alls aukakostnaðar. Stefnt er að því að þessi búnaður verði

kominn upp um mitt tímabil, veturinn 2015. Þessi styrkur til áhaldakaupa gefur okkur möguleikann

á að veita krökkunum okkar betri æfinga aðstöðu ásamt því að geta boðið uppá mót og þar með öðrum

félögum til þátttöku. Einnig eflist snjóbrettaíþróttin í heild sinni á Austurlandi og gefur svæðinu aukið

aðdráttarafl fyrir brettaiðkendur. Stefnt er á að vera með nokkra viðburði á hverju ári. Því horfum við björtum

augum til framtíðar.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok