Meistaraflokkur Hattar deildarmeistarar

Síðasta mót vetrarins í 1. deildinni í hópfimleikum fór fram um síðustu helgi á Akureyri. Þrettán stúlkur frá fimleikadeild Hattar mættu til keppni með taugarnar þandar því fyrir mótið var ljóst að tvö lið væru að keppa um deildarmeistaratitilinn, Höttur og Stjarnan úr Garðabæ.

 

Keppnin var mjög spennandi þar sem þessi tvö lið voru jöfn að stigum eftir mót vetrarins. Mikil samstaða var í liði Hattar þrátt fyrir mikla taugaspennu og vitneskju um að ekkert mætti klikka og hver lending skipti máli. Lið Hattar sigraði á öllum áhöldum og vann mótið af öryggi. Fyrr í vetur urðu stúlkurnar Íslandsmeistarar á gólfæfingum og árangur liðsins alveg frábær á keppnistímabilinu. Liðið samanstendur af stúlkum sem hafa alist upp og æft hjá fimleikadeild Hattar frá unga aldri og stór hluti hópsins eru þjálfarar hjá fimleikadeildinni.

Lið frá fimleikadeild Hattar hafa staðið sig frábærlega í vetur. En þrjú lið frá fimleikadeild Hattar hafa tekið þátt á öllum mótum vetrarins. Kepptu liðin í 1. deild Fimleikasambands Íslands og hafa ekki svo mörg lið tekið þátt í deildinni frá Hetti áður. Öll liðin frá Hetti hafa komist á verðlaunapall á mótum í vetur. Ljóst er að mikil gróska er í íþróttinni hér á Egilsstöðum og mikill ahugi meðal yngri iðkenda. Á síðasta mót vetrarins fóru 63 keppendur frá fimleikadeild Hattar, alls 7 lið. Þar af voru 4 lið að keppa í fyrsta skipti, krakkar á aldrinum 9-12 ára. Tvö liðanna voru skipuð drengjum og tvö skipuð stúlkum. Krakkarnir stóðu sig mjög vel á sínu fyrsta móti og voru sér og öðrum til sóma.

Óskum við Meistarflokki og öðrum keppendum Hattar til hamingju með frábæran árangur.

Myndir af keppendum Hattar á mótinu má sjá hér

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok