Þróttur kominn í úrslit

Lið Þróttar sótti KA heim í öðrum leik í undanúrslitum Íslandsmótsins í blaki kvenna í gærkvöldi. Þróttur sigraði 3-0. Fyrstu tvær hrinurnar sigruðu okkar stúlkur með sannfærandi hætti 25-13, 25-11, til tíðinda dró í lokahrinunni og var hún jöfn og æsispennandi en lauk með sigri Þróttar 28-26.

Þróttur Nes er því komið í úrslit til Íslandsmeistaratitilinn 2011 og mætir þar HK.
Fyrsti leikurinn í rimmunni verður í Neskaupstað þriðjudaginn 12. apríl kl. 19.30. Annar leikurinn verður í Fagralundi fimmtudaginn 14. apríl kl. 19.30 og ef til þriðja leiks kemur, fer hann fram í Neskaupstað laugardaginn 16. apríl kl. 14.00.
Óskum við Þróttarstúlkum góðs gengis í úrslitaviðureignunum og fylgjumst spennt með þeim.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok