Kynningarfundir Æskulýðsvettvangsins

UMFÍ, UÍA og Æskulýðsvettvangurinn standa fyrir fjórum kynningarfundum um starfsemi Æskulýðsvettvangsins á Austurlandi. Vettvangurinn býður upp á margvíslega þjónustu fyrir aðildarfélög UÍA, meðal annars fagráð sem aðstoðar ef upp koma erfið mál í starfinu.

 

Æskulýðsvettvangurinn er samstarfsvettvangur Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi, Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og Ungmennafélags Íslands. Æskulýðsvettvangurinn vinnur að sameiginlegum hagsmunamálum barna og ungmenna í íþrótta- og æskulýðsstarfi og stuðlar að heilbrigðum, uppbyggjandi og vönduðum aðstæðum í slíku starfi.

Æskulýðsvettvangurinn býður upp á margvíslega þjónustu fyrir þau félagasamtök sem saman mynda vettvanginn og aðildarfélög þeirra og býr yfir fjölmörgum verkfærum sem félögin njóta góðs af.

Má þar til að mynda nefna viðbragðsáætlun þar sem finna má verkferla sem fylgja skal þegar upp koma atvik eða áföll sem kunna að hafa áhrif á starf félags, siðareglur sem fjalla meðal annars um samskipti, námskeið er snúa að því að stuðla að öryggi og vellíðan barna og ungmenna í íþrótta- og æskulýðsstarfi og fagráð sem aðstoðar félögin við að leysa úr málum sem upp koma í starfinu.

Gestir fundanna verða Sema Erla Serdar, framkvæmdastýra Æskulýðsvettvangsins og Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ.

Fundirnir eru öllum opnir, en einkum ætlaðir foreldrum, þjálfurum, stjórnarfólki og iðkendum 14 ára og eldri.

Fundirnir verða sem hér segir
Djúpivogur, Hótel Framtíð, mánudag 10. febrúar kl. 16-17
Reyðarfirði, skrifstofum Fjarðarbyggðar, 2. hæð í Molanum, mánudag 10. febrúar kl. 19-20
Vopnafirði, Miklagarði, þriðjudag 11. febrúar kl. 15:30-16:30
Egilsstöðum, Hótel Valaskjálf – Þingmúla, 11. febrúar kl. 18-19.

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok