Setti Íslandsmet í 600 metra hlaupi

Björg Gunnlaugsdóttir, UÍA, setti um síðustu helgi Íslandsmet í 600 metra hlaupi 12 ára stúlkna innanhúss á Silfurleikum ÍR. Björg hlaut alls þrenn gullverðlaun á mótinu.

Björg, sem æfir með Hetti, hljóp á tímanum 1:43,87 mín. Björg bætti eldra met, sem sett var árið 2013, um 6 hundraðshluta úr sekúndu.

Björg kom einnig heim með tvenn önnur gullverðlaun. Hún sigraði í 60 metra hlaupi stúlkna á tímanum 8,66 sek. og í þrístökki með að stökkva 9,97 metra.

Einn annar keppandi var frá UÍA, Friðbjörg Árni Sigurðarson. Hann vann til bronsverðlauna í flokki 14 ára pilta þar sem hann kastaði 10,94 metra.

Silfurleikarnir eru eitt stærsta frjálsíþróttamótið sem haldið er hérlendis en þar keppa 17 ár og yngri. Mótið fékk nafn sitt árið 2006 til að fagna því að þá var hálf öld liðin frá því að Austfirðingurinn Vilhjálmur Einarsson fékk silfurverðlaun í þrístökki á Ólympíuleikunum en hann keppti um tíma fyrir ÍR.

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok