Hákar af Héraði

Davíð Þór Sigurðarson, formaður Hattar, og Bjarni Þór Haraldsson, frá Skotíþróttafélagi Austurlands, hlut viðurkenningar sem kjaftaskur og mathákur 67. sambandsþings UÍA sem haldið var í Grunnskólanum á Reyðarfirði í gær.

Davíð Þór hafði yfirburði í samkeppninni um ræðustólinn í gær. Var hann farinn að biðjast afsökunar á hve oft hann kæmi upp og lofaði að hvert skipti yrði það síðasta en þverbraut það jafnóðum.

Keppnin um mathákinn var öllu jafnari. Bjarni mun þó hins vegar hafa farið þrisvar sinnum til að fá sér í hádeginu. Það er skiljanlegt þar sem hann þurfti að borða fyrir tvo en annar fulltrúi SKAUST forfallaðist vegna veikinda á síðustu stundu.

Því er við þetta að bæta að Bjarni Þór og Davíð Þór sátu saman á borði á þinginu í gær.

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok