Ester Sigurásta komin til starfa

Ester Sigurásta Sigurðardóttir tók í gær formlega til starfa sem framkvæmdastjóri UÍA. Formleg skipti fóru fram með boðsundsskiptingu í sundlauginni á Egilsstöðum í gær enda Ester sundmaður mikill.

Er það nokkuð táknrænt að Ester stakk sér beint í djúpu laugina. Hildur Bergsdóttir, framkvæmdastýra frá 2010, er nú að koma sér fyrir á bakkanum.

Ester er búsett á Vopnafirði og verður með skrifstofuaðstöðu hjá Vopnafjarðarhreppi fyrst um sinn. Skrifstofan á Egilsstöðum verður því að mestu lokuð. Ester svarar hins vegar öllum fyrirspurnum í síma 471-1353 eða á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok