Sambandsþing UÍA fer fram 2. apríl á Reyðarfirði

Hið árlega sambandsþing UÍA mun fara fram sunnudaginn 2. apríl 2017 í grunnskólanum á Reyðarfirði.

Sambandsþing er æðsta vald sambandsins og þaðan sækjir stjórn umboð sitt til góðra verka. Rík áhersla er lögð á að félögin sendi þingfulltrúa og taki virkan þátt í að móta starf  og stefnu sambandsins.

 Félögin eru því hvött til að taka daginn frá strax og huga að þingfulltrúum. Þinggögn og nánari upplýsingar verða send félögunum þegar nær dregur.

Þátttaka á þingi er meðal þeirra skilyrða sem félögin þurfa að uppfylla til að fá greiddar lottótekjur ár hvert.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok