Bólholtsbikarinn 2016-2017 hefst senn

Keppni í Bólholtsbikarnum í körfuknattleik hefst innan skamms. Áhugasamir körfuknattleiksmenn á starfsvæði á Austurlandi tóku árið 2011 höndum saman og efndu til utandeildarkeppni í körfuknattleik í samstarfi við UÍA og með fulltingi frá Bólholti. Keppnin hefur notið mikilla vinsælda og hefur því verið ákveðið blása til leiks í Bólholtsbikarnum í sjótta sinn.

Keppnin er ætluð hópum á starfssvæði UÍA og er hugsuð fyrir leikmenn sem ekki spila körfubolta að staðaldri með Meistaraflokki á Íslandsmótum. Leikið verður í umferðum og munu keppnislið spila bæði heima og heiman. Leiktími er 4x10 mínútur. Sigursælasta liðið í lok keppni hlýtur Bólholtsbikarinn en einnig verða veitt verðlaun fyrir stigakóng keppninnar. Ráðgert er að keppnin hefjist í lok október/byrjun nóvember.

Skráningarfrestur liða er til 12. október og skulu skráningar berast til UÍA, Tjarnarási 6, 700 Egilsstaðir eða á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Skráningargjöld eru 25.000 kr á lið.

Skráningareyðublöð má nálgast hér.

Eins og sjá má á skráningarblöðum eru liðin beðin að tilgreina heimavöll. Gerðar verða ákveðnar tilslakanir á stærðum keppnisvalla og kröfum um útbúnað (s.s. skotklukkur) en UÍA áskilur sér rétt til að hafna keppnisvöllum, þykir þeir óhentugir.

Liðin eru beðin að tilgreina tvo dómara sem tiltækir geta verið í dómgæslu á heimaleikjum liðsins. Æskilegt er að dómari hafi dómararéttindi en að öðrum kosti sé nýttur traustur einstaklingur sem hefur góða þekkingu á íþróttinni. UÍA greiðir þóknun fyrir dómgæslu. Heimalið hverju sinni þarf einnig að útvega stigavörð og ritara.

Reglur keppninnar má sjá hér.

Liðum ber að leika í samlitum búningum með númeri en hvorki gerð krafa um að þeir séu dýrir né glæsilegir.

Fulltrúar liðanna mega eiga von á að vera boðaðir á fund skömmu eftir að skráningarfrestur rennur út þar sem reglur keppninnar verða ræddar og fyrirkomulag útfært nánar.

Á myndinni hér til hliðar má sjá ríkjandi meistara Bólholtsbikarsins, lið Hattar.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.
Ok